Verbatim MediaStation HD DVR

Kannast einhver við þessa græju sem var seld hjá Ormsson ?

Ég er sisona að reyna að nettengja gamalt sjónvarp !

Það gengur ekki alveg þrátt fyrir góðar leiðbeiningar. En næstum því.

Ég er með "home edition" af Windows 10 (og líka 7). Það er ekki með gpedit.msc sem þarf að nota í stigi 3 í leiðbeiningunum.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Rás eitt eytt

Hvað var mörgum sagt upp á tónlistardeild ?  Hún var að fá viðurkenningu.
Maður veltir fyrir sér hvort beinum útsendingum frá Sinfóníunni verði hætt.  Tónmeistara var sagt upp.

Þessir þættir falla niður :

1) Út um græna grundu http://podcast.ruv.is/ut_um_graena_grundu/podcast.xml :::  http://ruv.is/ugg

2)Tilraunaglasið http://www.ruv.is/tilraunaglasid ::: http://podcast.ruv.is/tilraunaglasid/podcast.xml

3) Kvika http://ruv.is/kvika ::: http://podcast.ruv.is/kvika/podcast.xml

4) Girni http://www.ruv.is/girni-grusk-og-gloriur

 5) Úr tónlistarlífinu http://www.ruv.is/tonlistarlifid

 6) Sinfóníukvöld http://www.ruv.is/sinfoniukvold

 7) Ópus http://ruv.is/opus

 8) Bak við stjörnurnar http://dagskra.ruv.is/nanar/17212/

 9) Fimm fjórðu http://podcast.ruv.is/fimm_fjordu/podcast.xml :::  http://dagskra.ruv.is/nanar/17224/

10) Litla flugan http://podcast.ruv.is/litla_flugan/podcast.xml :::  http://dagskra.ruv.is/nanar/15056/

11) Leynifélagið http://ruv.is/leynifelagid ::: http://podcast.ruv.is/leynifelagid/podcast.xml

12) Hvað er málið ?http://www.ruv.is/hvadermalid ::: http://podcast.ruv.is/hvad_er_malid/podcast.xml

13) Óskastundin http://dagskra.ruv.is/nanar/17223/

14) Stefnumót http://dagskra.ruv.is/nanar/17028/
mbl.is Fækkað um níu hjá Rás 1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu orkufrekt er kísilver ?

Kísilverið þarf 52 megavött sem fer kannski seinna uppí 104.  Það er langt frá þeim 625 sem álverið hefði þurft.

Af hverju tiltók SJS bæði Þeistareyki og stækkun Kröflu OG (með fyrirvara) fyrsta áfanga Bjarnarflagsvirkjunar ? Ef kísilverið þarf allt þetta, hvaða virkjanafjöld hefði þá Bakkarisaálver eiginlega þurft ?

Landsnet hyggst byggja mikla línu frá Kröflu austur að Fljótsdalsstöð.


mbl.is Frumvörp um Bakka lögfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki Helguvík, heldur Grundartangi

,,Skömmu áður höfðum við farið á fund hluta ríkisstjórnarinnar, með þá Geir Haarde forsætisráðherra, Árna Mathiesen fjármálaráðherra og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra. Og þar kemur skýrt fram að þeir geta ekki boðið okkur ríkisábyrgð, þetta er í nóvember 2008, á neitt. Hinsvegar geta þeir, og vilja láta okkur hafa „letter of comfort“. Og það er lagt mjög hart að okkur á þessum fundi, og ég er bara að segja eins og er, ég hef aldrei séð eins þreytt fólk eins og þessa ráðherra þetta álag hefur verið óstjórnlegt. Og þeir bara biðja okkur lengstra orða með það að það megi ekki hætta við Helguvíkurverkefnið, það sé leiðin út úr þessum ógöngum, þetta eru skilaboðin við okkur frá þáverandi stjórnvöldum. Þetta förum við með og við fáum loforð fyrir því að við fáum „letter of comfort“ frá þeim til þess að senda þessum bönkum, til þess að fá þessa fjármögnun. Við gátum ekki séð fyrir byltingu í janúar eða slíkt. En það sem gerist er það að í desember þá uppfyllum við samning frá því 7. júní 2007 um sölu á 90 megawöttum sem eiga að fara í Helguvík, en við segjum: „Við vitum ekki hvort að Helguvík rís þannig að þið verðið að kaupa þessa orku „no matter what“. Og þá segja þeir: „Já það gerum við, þá setjum við „spennuhækkun“ sem kallað er í Hvalfjörðinn, nýtum þessi 90 megawött þar, þannig að það er staðan þegar við skrifum undir.“

Það kemur ekki fram í fréttinni hvaðan orkan á að koma en hangir það ekki á spýtunni að OR muni fara í Hverahlíðarvirkjun til að uppfylla þennan samning sem felur í sér lágt orkuverð ?
 Stækkun í Straumsvík um 40 þúsund tonn útheimtir 75 MW frá Búðarhálsvirkjun.

 


mbl.is Fjárfesta fyrir rúma 10 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beykiskógur á Sprengisandi

Í nánari frétt um þetta nefnir skógræktarstjóri Sprengisand sem huga ætti að sem skógræktarsvæði. 

Það kemur til greina eða ekki


mbl.is Franskan skóg hingað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svört náttúruvernd ?

Hún er falleg myndin þarna með fréttinni eftir Mats Wibe Lund.  Þarna er víst víðerni.  Ég man eftir þessari lýsingu af steinvölunum á Sprengisandi.  Er þetta náttúruvernd hinna svörtu sanda eins og Friðrik Sophusson minntist á eftir að hafa skrifað undir viljayfirlýsingu með Alcoa & Co um Kárahnjúkavirkjun ?
mbl.is Vilja Hofsjökulsþjóðgarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert annað álver

Hér kemur skýrt fram hjá forstjóra Alcoa að nýtt álver er ekki reist uppá neitt minna en 360 þúsund tonn.
mbl.is Álver á Bakka komið út af kortinu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn arður af Landsvirkjun

Hér kemur fram að arðgreiðslur Landsvirkjunar voru 204 milljónir árið 1996 en fóru mest í 394 milljónir árið 2004.  En það vantar tölur eftir það.  Kárahnjúkavirkjun komst í gagnið haustið 2006.  Þar ku rafmagnið vera selt á 17,4 mills á kílóvattstund miðað við áltonn á 1564 dollara.  Hvað gera reiknimeistarar Landsvirkjunar eiginlega ráð fyrir mörgum millsum í framtíðinni ?
 
mbl.is Allt að 112 milljarðar á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurstaða rammaáætlunar á morgun ?

Þóra Ellen Þórhallsdóttir, sem hefur unnið í rúm 8 ár í faghópi I innan rammaáætlunar, segir í þessu viðtali að niðurstaðan muni liggja fyrir í maí.  Nú er kominn júní þannig að væntanlega er mjög stutt í hana.  Verður niðurstaða rammaáætlunar friðarsáttmáli um orkunýtingarflokk, verndarflokk og biðflokk ?
mbl.is Engar rannsóknir fyrr en rammaáætlun liggur fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

blagg

Höfundur

Pétur Þorleifsson
Pétur Þorleifsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Jamaik3
  • JamaikaRedMud
  • Jamaika2
  • Jamaika1
  • JamaikaVatn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband