Fáránlegt segir umhverfisráðherra

"Varðandi álverið í Helguvík að þá er það, svo FÁRÁNLEGT sem það nú er, að þá er hægt að leggja upp með svona stór áform án þess að hafa í raun og veru fyrirheit um nema hluta af orkuöfluninni. Og þannig er ástandið.  Þannig að það má eiginlega segja að þeir sem eru með óljósar áætlanir, óljós plön, komist hjá því, innan gæsalappa, að gangast undir sameiginlegt mat. Það er náttúrulega dáldið farið þá að snúa hlutunum á haus."
 Jú,svolítið FÁRÁNLEGT.

mbl.is Vonbrigði með útúrsnúning ráðuneytis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kærendur tilgreini virkjanir !

Til stendur að reisa í Helguvík stærri álverksmiðju en þessa fyrir austan.  Enginn veit nákvæmlega hvaðan sú orka á að koma.  EKKI GEFUR iðnaðarráðherra það upp né umhverfisráðherra.  En samkvæmt punkti EITT eiga kærendur að tilgreina það. Kostulegt.
mbl.is Ekki í sameiginlegt mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullvirkjun Íslands fyrir stóriðju

Það strandar ekki á rammaáætlun segir Svanfríður.  Enda bindur stóriðjumaskínan vonir við þá áætlun.  Einu sinni var áætlað að nota Austurlandsvirkjun til að knýja álver á Keilisnesi á Reykjanesskaga.  Það er meiningin að soga ekki aðeins upp alla orku hér sunnan lands fyrir álver í Helguvík heldur hvaðan sem er af landinu.  Þannig er stækkun í Straumsvík um 300 þúsund tonn hugsuð.  Þær ferðast hratt milli landshluta elektrónurnar sagði orkumálastjóri.

Orkan er handa álverum eins og fyrri daginn og 360 þúsund tonna álver er lágmarksstærð.


mbl.is Stækkun álvers í brennidepli á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kárahnjúkar komu við kvikuna

Icesave varðar vexti af lánum og endurgreiðslutíma og svo hvort við séum yfirleitt lagalega skyldug til að borga. Ætli það sé ekki lágmark siðferðilega að borga höfuðstólinn ?  Ég veit ekki meir. Nema að nokkrir milljarðar til eða frá eru afturkræfir.

Í aðdraganda Kárahnjúkavirkjunar var séð til þess að framkvæmdin kæmi ekki við kvikuna í fólki áður en búið var að samþykkja lögin.  Það tókst að koma í veg fyrir að fólk fattaði stærð málsins og óafturkræfni fyrr en of seint.
 Í umhverfismatinu kom fram að áhrifasvæði virkjunarinnar væri um 3000 ferkílómetrar. Líklega hefðum við fræðst frekar um það í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu

 


mbl.is Ekki of flókið árið 2003
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kárahnjúkar stærsta málið

"Þegar ég var í forsetaembættinu myndaði ég mér mjög ítarlega skoðun um það hvenær ég myndi neita að skrifa undir lög,nýta mér vald forsetans í stjórnarskránni. Ég var iðulega í læri hjá Ólafi Jóhannessyni,prófessor í lögfræði,sem skrifaði þykka bók um stjórnarskrána en eins og alþjóð veit varð hann seinna forsætisráðherra.  Tvennt hefði ég aldrei skrifað undir.  Ef Íslendingar álpuðust til að innleiða dauðarefsingu myndi ég vísa því til þjóðarinnar.  Hið sama myndi ég gera ef Íslendingar,fyrir einhvern fálkahátt myndu ákveða að selja land einsog getið er um í miðaldabókmenntum þegar Ólafur Noregskonungur falaðist eftir Grímsey. Ég myndi aldrei kvitta undir það að selja hluta af landinu.  Gæti verið að Kárahnjúkamálið sé það að selja land ? Það á að sökkva landi sem er óafturkræft."

Vigdís forseti sagði þetta árið 2003 í viðtali við Toyota-blaðið. (!)  Þetta var á þeim tíma þegar leita þurfti dyrum og dyngjum að yfirlýsingum framámanna gegn málinu. 

Kárahnjúkaframkvæmdin varðaði grundvallarspurningu.  Frekar en Icesave og fjölmiðlalög. 


Skjaldborgin um forsetann

Hér er lítil frétt frá árinu 2003.

Hvernig stóð á því að svona erfitt var að ná tali af forsetanum um þetta mál, Kárahnjúkavirkjun ?  Var það ennþá feimnismál eins og árið 2002 ?

Líklega hefði orðið meiri umræða um óafturkræfnina ef forsetinn hefði ekki skrifað undir.


mbl.is Fjölmiðlalögin fóru ekki í þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagði forstjórinn

"But the agreed price — 30 dollars per megawatt-hour — was far from ideal. In Iceland, the company pays half that." sagði forstjóri Alcoa.

Hér má sjá tölur.


mbl.is Kvarta til ESA vegna orkuverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sátt um Suðvesturlínu ?

"Af einstökum framkvæmdum má nefna byggingu álvers í Helguvík. Vilhjálmur segir það mál komið í farveg sem sátt er um."  Sátt um það að fá ekki virkjanir uppá borðið með línunum ?

Meðal annarra orða : Fréttamaður Spegilsins mætti forstjórum allra álfyrirtækjanna í dyrunum hjá fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.  Voldugir aðilar víst þar saman komnir.


mbl.is „Á tímabili var þetta komið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Torfajökulssvæðið virkjað ?

Orkumálastjóri hefur ekkert út á greiningu Sigmundar Einarssonar að setja.  Nema hann segir að elektrónurnar ferðist hratt milli landshluta.  Og er þá væntanlega að vísa til fleiri kosta sem ekki hafa verið í umræðunni.
mbl.is Nýtt gullæði á Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

blagg

Höfundur

Pétur Þorleifsson
Pétur Þorleifsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Jamaik3
  • JamaikaRedMud
  • Jamaika2
  • Jamaika1
  • JamaikaVatn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband