Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Rannsóknarleyfi í Grændal

Tíunda maí veitti Orkustofnun Sunnlenskri orku rannsóknarleyfi í Grændal.

Maður hélt að búið væri að friða hann.  Svo er víst ekki.

Grændalur er tíundaður í "Fagra Íslandi" Samfylkingarinnar.

Kannski verður það sagt að þetta sé ekki á valdi ráðherra.


Sérleyfafrumskógur

Ef maður hringir í Umferðarmiðstöðina og spyr um rútu til Patreksfjarðar er ekki víst að rétt svar fáist.
Að þurfa að grafa upp nafnið á sérleyfishafanum til að finna út rútuáætlun er í meira lagi óaðgengilegt.
Ég fann eina vefsíðu á ensku þar sem rútuáætlanir landsins eru á einum stað. En þar fylgja með símanúmer til að athuga hvort áætlunin sé örugglega rétt.
Strætó keyrir til Hveragerðis og Selfoss oft á dag.  Má þá ekki kaupa far til Selfoss með áæltunarbíl sem fer t.d. til Hafnar í Hornafirði ?  Fargjaldið til Hveragerðis og Selfoss er allavega tiltekið HÉR.


mbl.is Lögbann á Kynnisferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða rúta gengur þangað ?

Til þess að finna áætlanir rútanna á landinu þarf að grafa upp hver er með sérleyfið á hverri leið.  Svo getur verið annað nafn á fyrirtækinu sem keyrir en þeim aðila sem skráður er með sérleyfið.  Áætlanarnir ættu auðvitað að vera aðgengilegar á einni vefsíðu. Svo er engan veginn.  Og þó.  Ekki að furða að fáir séu í ferðum.


mbl.is Milljarður á ári í samgöngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Agent Orange : Díoxín

A.m.k. 46 milljón lítrum var úðað yfir Víetnam á árunum 1962 til 1971.  Stendur hér í Tímariti Morgunblaðsins.


mbl.is Notuðu hættulegt eitur til að eyða kjarrgróðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bomba Magma

Það er verið að myndast við að skilgreina sjálfbærni nýtingar jarðhitasvæða.  Það vantar inn í lög um umhverfismat hve mikið af vatni og gufu megi taka upp (24.11.08).  Sérfræðingur (nú í stjórn Landsvirkjunar) segir að jarðhitavirkjanir henti ekki stóriðju.

En nú kemur Magma sisona með aðferð sem tryggir 1000 rafmagnsmegavött á ári !

Það er ekki tími til að bíða eftir djúpboruninni.


mbl.is Tundurskeyti brennt til örvunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju skal trúa ?

Orkustofnun hefur dregið að gefa út virkjunarleyfi fyrir þessari stækkun Reykjanesvirkjunar af því að SVÆÐIÐ er nú þegar TALIÐ stórlega ofnýtt.

Fjallaði þessi starfshópur eitthvað um sjálfbærnina þarna suður frá ?

Það var inni í myndinni fyrir nokkrum árum að leggja gufuleiðslu frá Trölladyngju til Keilisness eða Straumsvíkur til að hita upp vítissóda fyrir vinnslu súráls úr báxíti.  Það er kannski enn bak við eyrað ?

Að minnsta kosti 2 milljónir tonna af rauðri leðju fellur nú til árlega einhvers staðar vegna álframleiðslu á Íslandi.


mbl.is Álver að komast á skrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hentar súrál jarðhita ?

Að einu leyti hefði súrálsverksmiðja verið skynsamlegri en álverksmiðja við Húsavík.  Það stóð til að nýta heita vatnið eða gufuna beint.  Það hefði þýtt  betri nýtingu (88 %) á orkunni en ef eingöngu væri framleitt rafmagn (12 %) úr henni. 

Í Gíneu í Vestur-Afríku er mest af báxíti í heiminum.  En þar er lítið um súrálsverksmiðjur, skilst mér.  Báxítið er flutt óunnið út.  Einhverjir rússar, sem eiga námur þar, sögðust árið 2002 vilja reisa hér súrálsverksmiðju með 2 milljóna tonna framleiðslu.  Það hefði þýtt flutning á 4 milljónum tonnum af báxíti hingað árlega.  Og tveggja milljón tonna indælis úrgangur dagaði uppi hér.

Til að framleiða 2 milljón tonn af súráli þarf 8 milljón tonn af gufu.  Er mikið mál að dæla svo miklu magni upp ?  Yrði það ekki gert hvort sem er ef álver uppá 360 þúsund tonn yrði knúið með rafmagni úr jarðhita ?  Þá kæmi súrálsverksmiðjan kannski bara seinna.  Maður veit aldrei.

 

 


mbl.is Óttast aðra eiturleðjuflóðbylgju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyngmói eða lúpína ?

Snorri Baldursson skrifar HÉR grein í Fréttablaðið þar sem hann svarar grein Vilhjálms Lúðvíkssonar : Til varnar líffjölbreytni á Íslandi - síðari grein

Áður hafði Snorri skrifað SVAR við fyrri GREIN Vilhjálms.

Það fer nú ekki mikið fyrir þessum skoðanaskiptum þótt hér á ÞESSARI bloggsíðu megi finna í athugasemdum heilmikinn hita.

Hálfgert var tekið undir í LEIÐARA Fréttablaðsins það sem Margrét Jónsdóttir SKRIFAÐI : "Það er sem sagt lyngið sem hverfur í sumum tilfellum og hvað með það ?"

Mér er ekki sama um það og ég held að það eigi við um marga fleiri þó þeir hafi ekki orð á því.

 


Bremsurnar virkjaðar

Ekki vissi ég að hægt væri að framleiða rafmagn með því að bremsa bíl.  Það kom fram í þessari forsíðufrétt Fréttablaðsins að sú tækni er til - í blendingsbílum (hybrid).  Og ég tek eftir því að fleiri koma af fjöllum í því efni.  En maður hefði búist við því að slíkur "dínamór" væri algengari og hefði komið til fyrr.

Góður aurframburður

Þarna í fréttinni er gengið út frá því sem staðreynd að aurframburðurinn næri lífríki hafsins.

Það er útaf (mp3) fyrir sig athyglisvert.


mbl.is Bæði jákvætt og neikvætt í lífríki hafsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

blagg

Höfundur

Pétur Þorleifsson
Pétur Þorleifsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Jamaik3
  • JamaikaRedMud
  • Jamaika2
  • Jamaika1
  • JamaikaVatn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 652

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband